föstudagur, 7. febrúar 2014

Matarást :: Rice Krispies Skírnavagga.


Elsti bróðir minn er að fara skíra litlu prinsessuna sína næstu helgi, löv löv á það !
Hann bað mig um að búa til einhvað úr Rice Krispies, svona fyrir krakkana.
Eins og ég er, þurfti ég að finna einhvað skírnar tengt og auðvita datt ég í lukkupottinn á google !
Rice Krispies kransakaka sem er í laginu eins og vagga, löv it !
Fékk þessa fínu uppskrift á mömmur.is

Rice Kristpies Skírnavagga
u.þ.b 3x venjuleg uppskrift.
Uppskrift
500 gr Nóa Síríus rjómasúkkulaði
1 lítil dós síróp
150 gr Smjör
280 gr Rice Krispies
Aðferð
Súkkulaði, síróp og smjör sett í pott.
Hrærið stöðugt í á meðan súkkulaðið er að bráðna.
Hrærið örlítið áfram áður en bætt er Rice Kristpies útí.
Bætið Rice Kristpies saman við og hrærið þar til það blandast vel saman.
Mótið körfulega hringi, boga  og botninn á bökunarpappír.
látið kólna í kæli/frysti.

4 misstórir körfulega hringir.
6-7 borgar (fyrir skerminn).
1 bak fyrir skerminn.
1 botn fyrir körfulaga hringina.

Kakan er sett saman með bræddu súkkulaði.

Ps. Gott er að setja bökunarpappír inn í körfuna til að halda henni saman meðan hún kólnar.
& afsakið að það vantar myndir af nokkrum sporum, bæti það kannski upp seinna.

Hráefnið í kökuna

Hráefnið viktað og tilbúið til notkunar
Smjör, sírop og súkkulaði komið í pottinn.
Búinn að bræða smjörið, sírópið og súkkulaðið saman.
Bæti rólega Rice Krispies útí
Helmingurinn kominn útí
Allt komið útí, hrært vel og tilbúð til mótunar
4 flottir körfulaga hringir
 botninn kominn með
Geymdi þetta svona í frystinu, sá líka einnig hvort hringirnir pössuðu svona.
Skerurinn að kólna.
Kakan öll sett saman.
Vona að þið njótið vel, xoxo
íriserna

Engin ummæli:

Skrifa ummæli