föstudagur, 31. janúar 2014

Matarást :: Pizzubotn

Það er varla frá sögu færandi hvað ég á æðislega teindaforeldra !
Þau eru bara orðinn eiginlega mamma og pabbi nr 2.
Hreinlega elska þau endalaust, tóku við mér með opnum örmum þegar ég fyrst kom og hafa varla sleppt tökum af manni síðan.

En hún teindamamma mín, Friðmey, er alltaf að kenna mér uppskriftir, þær sem Valgeir finnst góðar.
Auðvita vill maðurinn það sem mamma hans eldaði fyrir hann, þótt hann sé fluttur af heiman.

Það er alltaf pizza á föstudögum og hann hefur eiginlga smitað þessa hefð í mína fjölskyldu líka.
Hér heima höfum við annað slagið okkar eigin pizzu, aðalega þegar við viljum breyta smá til.
Fékk þessa æðislegu uppskrift frá Friðmey. Vallý, móðir hennar, kenndi henni þessa uppskrift.
Hreinlega fer frá kynslóð yfir á kynslóð.
Einföld, góð og ekki beint fljótleg, hehe.

Pizzubotn
u.þ.b fyrir 4 manns
2 - 2,5 klst
Uppskrift :
3 dl volt vatn
1 poki þurrger
1 msk olía
6 dl hveiti

Aðferð:
Setur vatnið í skál.
Stráir þurrgerinu yfir, jaft og þétt.
Bætir olíu og 3 dl af hveiti út í.
Hrærið vel saman, ég nota sleikjuna mína í það (á ekki sleif)
Bætið síðan hinum 3 dl af hveitinu útí og hræri vel saman.
Setur lok yfir skálina, loft tæmir vel.
Leyfir þessu að gerjast í góðan tíma, ég leyfðu þessu að vera í sc. klst.
Stráð hveiti á borðið, deigið ofan á og bættið smá hveiti við, ef það er enþá soldið blautt.
Hnoðið vel saman. 
Setjið síðan rakt viskustykki yfir.
Leyfið að gerjast en meirr í sc. 30 mín.
Gerið allt álegg tilbúið á meðan.
Fletur út degið á smjörpappír.
Setur sósu og álegg á.
Setur pizzuna inn í ofninn á sc. 180°c, blástur.
Þegar osturinn er bráðnaur, farinn að brúnka og botninn bakaður er pizzan tilbúin.



Þurrgerið sem ég nota
búið að hræra þurrgerið, vatnið, olíuna og 3 dl af hveiti
Buið að hræra 3 dl af hveitinu við
Litla snúllan mín sem hjálpaði mér ;*
Læt það bíða í sc. klst í skálinu, með lokið á, lofttæmt
Stráið hveiti á borið
Svona lítur þetta út í skálinni, eftir fyrstu gerjun.
Hnoðar það örlítið með hveiti ef það er enþá blautt
Rakt viskustykki yfir, í lokinn var þetta 2x stærra.
Sósan komin á pissuna og undirbúningur hafinn
Pizzan heit úr ofninum, gómsæt og girnileg.

Njótið vel elskurnar.
Eigið góða helgi :*
xoxo

íriserna

fimmtudagur, 30. janúar 2014

DIY :: Valentines Day Gifts

Valenínusar dagurinn er rétt að koma og vil í tilefni þess að sýna ykkur flottar og skemmtilegar hugmyndir á gjöfum sem þið getið gert sjálf handa ykkar elskulega maka.

Ekki leiðinlegt að kaupa tvær könnur og ceramik túss og skreyta þær fallega.
Einfalt, persónulegt og ódýrt
Áttu krítamálingu ?
Ef svo, þá gætiru búið til allskyns fallegar könnur og skilið eftir falleg skilaboð
arðu út í búð, keyptu uppáhald gler bjórinn eða gos makans.
Getur tekið svona glesflöskukassa og skreytt hann eða búið til þinn eigin.
Makinn mun elska það !
Rauðar vöfflur með hjartalaga rjóma á.
bætir smá súkkulaði og sírop með,mjólkurglas og kannski ein rauð rós.
Volla flottur morgunmatur í rúmið
Einfalt og mjög persónulegt.
Hver myndi ekki elska að fá svona frá makanum sínum.
Gjafakarfa.
Karfa, ostar, kex, sulta, vín og smá fallegt bréf.
Gæti ekki verið einfaldara.
Findu næsta spilastokk, penna, pappír, lím, gatara og band.
Límir á hvert spil pappírsbút, skrifar einhvað fallegt til makans, gatar öll spilin og bindir þau saman.
Einnig geturu gert stafróið.
Eitt blað fyrir hvern staf og skrifa afhverju þu elskar makan.
En setningin verður að byrja á þeim staf sem er á blaðinu.
Hérna er hægt að kaupa annahvort dökkan pappír eða prenta tökkalitin á blaðið.
En það sem þarf er rammi, pappír, tölva með t.d. word í og prentari.
Afar einfalt og rosalega fallegt.
Þinn maki mikið fyrir Te ?
Búðu þá til þína eigin tepoka með uppáhalds te makans.
Get varla lýst því hvað þetta er sniðugt.
Blað, vaxlitur og máling.
Skafkort komið fyrir makan.

Ég klárlega mun nota einhvað af þessu fyrir minn mann.
Elska svona daga, sérstaklega þegar maður er með börn, þá leyfir maður sér ekki alltaf að nota dagana fyrir sig og makan. Þess vegna eru þessi dagar svo yndilegir.

Love á ykkur fólk, og njótið dagsins í sannri ást !
xoxo

íriserna

sunnudagur, 26. janúar 2014

Matarást :: Ávaxtaboost

Langar að deila með ykkur einni af þeim uppskriftin af Ávaxtaboost sem ég bý oft til.
Þetta á að hjálpa mér við blóðsykursrokkið hjá mér.
Þið getið alltaf breytt til og prufað ykkur áfram.

Ávaxtaboost
u.þ.b. 150 ml

Uppskrift :
3-4 klakar
½ dl haframjöl
½ epli
⅓ appelsína
3 jarðaber
1 dl vatn/safi
½ dl haframjöl
Prótein ef það á við.

Aðferð:
Byrjar á því að fín mixa haframjöli ( þarf þessi ekki, en finnst það þægilegra )
Setur síðan ávextina og klakana útí og mixar það og hellir síðan vökvanum hægt og rólega útí.

Ps. Getið einnig bæt við, stækkað eða skipt út ávöxtum. hreinlega ykkar val :)
Einnig mjög gott að setja bara klaka, safa, mandarenur, jarðaber og kiví, mitt uppáhald.

Í þessu tilfelli nota ég appelsínu og epli
Einnig nota ég frosin jarðaber.
Af híðið þær og setjið í báta
Sett allt saman í blandaran og mixa vel.
Oft set ég afgangin síðan í frysti.
Set í skammt í hvern poka fyrir sig og þá er þetta fljótlegt og þægilegt.

Njótið, xoxo

íriserna

mánudagur, 20. janúar 2014

Matarást :: Kókosbollur án sykurs

Fékk þessa uppskrift hjá mjög góðri vinkonu minnis sem elskaði kókoskúlur á meðgöngunni.
Mjög einföld og góð uppskrift.
Ég var búin að gera nokkrar tilraunir á þessari uppskrift og alltaf klikaði ég á því að setja smjörliki í staðinn fyrir smjör og í þetta skipti setti ég smjör og þær brögðuðust svo vel og ég varð að búa til aftur.


Kókosbollur
u.þ.b 10 bollur

Uppskrift :
100 gr Smjör
3 dl Haframjöl
2 msk Kakó
1 tsk vaniludropar

Kókos


Aðferð :
Byrjar allt á því að setja þurr efnin út í.
& ekki gleyma vaniludropunum og smjörinu.
Ekki setja smjörliki, þær verða ekki eins góðar af mínu mati.
Hnoðið allt vel saman með höndunum m.a. 
Annars getiðið notað einhverja aðra aðferð sem hentar ykkur betur.
búið til litlar kúlur og veltið upp úr kókosnum.
& að lokum inn í frysti í 15-20 mín.
Takið þær síðan út og þær verða svoo gómsætar.


Ps. ef þið viljið hafa sykur í þeim, sem er mjög
gott líka þá bæitið bara útí uppskriftina 1 dl Sykur.



Njótið , xoxo

íriserna

Fytsta bloggið


Sæll netheimur.

Ég bara allt í einu ákvað að prufa að opna smá blogg.
Hef haft mörg blogg í gegnum tíðina m.a. hver man ekki eftir blog.central.is eða einhvað slíkt.
Úff átti margar svoleiðis síður með vinkonunum, góðir tímar.
Reyndi eitt sinn að opna síðu með verkefnum úr skólanum, það gekk vel þar til skólinn var búin og þá vissi ég ekkert hvað ég átti að gera og hætti, það eru 3 ár síðan.
Mér hefur þykið afar gaman að elda og sérstaklega að baka. Eftir að ég eignaðist stelpuna mína og hvað þá þegar ég varð stjúpmamma og þurfti að fara halda öll þessi afmæli þá kom svo mikill bökunar áhugi í mig að mig langaði bara að getað gert allt.
Þannig núna er ég loksins að prufa þetta og langar að posta hér inn þegar ég finn m.a. einhverja awesome uppskrift og baka hana eða einhverð geðveikt stuff sem maður getur gert sjálfur heima (DIY) og bara ekki gleyma þessu æðislega fjölskyldu lífi mínu, svo margt gerist sem maður vill deila með hreinlega öllum !
En endilega kæru lesendur, þið meigið virða það að ég er lesblind og skrifa ekki alltaf rétt og oft eru þetta villur sem eru gerðar í flýti, þið verðið bara að afsaka það.
En get varla beðið eftir að byrja þannig ég ætla að skella í einar kókosbollu uppskrift og deila með ykkur, hún er hreint yndilegt ! :)

Njótið, xoxo !