Það er varla frá sögu færandi hvað ég á æðislega teindaforeldra !
Þau eru bara orðinn eiginlega mamma og pabbi nr 2.
Hreinlega elska þau endalaust, tóku við mér með opnum örmum þegar ég fyrst kom og hafa varla sleppt tökum af manni síðan.
En hún teindamamma mín, Friðmey, er alltaf að kenna mér uppskriftir, þær sem Valgeir finnst góðar.
Auðvita vill maðurinn það sem mamma hans eldaði fyrir hann, þótt hann sé fluttur af heiman.
Það er alltaf pizza á föstudögum og hann hefur eiginlga smitað þessa hefð í mína fjölskyldu líka.
Hér heima höfum við annað slagið okkar eigin pizzu, aðalega þegar við viljum breyta smá til.
Fékk þessa æðislegu uppskrift frá Friðmey. Vallý, móðir hennar, kenndi henni þessa uppskrift.
Hreinlega fer frá kynslóð yfir á kynslóð.
Einföld, góð og ekki beint fljótleg, hehe.
Pizzubotn
u.þ.b fyrir 4 manns
2 - 2,5 klst
Uppskrift :
3 dl volt vatn
1 poki þurrger
1 msk olía
6 dl hveiti
Aðferð:
Setur vatnið í skál.
Stráir þurrgerinu yfir, jaft og þétt.
Bætir olíu og 3 dl af hveiti út í.
Hrærið vel saman, ég nota sleikjuna mína í það (á ekki sleif)
Bætið síðan hinum 3 dl af hveitinu útí og hræri vel saman.
Setur lok yfir skálina, loft tæmir vel.
Leyfir þessu að gerjast í góðan tíma, ég leyfðu þessu að vera í sc. klst.
Stráð hveiti á borðið, deigið ofan á og bættið smá hveiti við, ef það er enþá soldið blautt.
Hnoðið vel saman.
Setjið síðan rakt viskustykki yfir.
Leyfið að gerjast en meirr í sc. 30 mín.
Gerið allt álegg tilbúið á meðan.
Fletur út degið á smjörpappír.
Setur sósu og álegg á.
Setur pizzuna inn í ofninn á sc. 180°c, blástur.
Þegar osturinn er bráðnaur, farinn að brúnka og botninn bakaður er pizzan tilbúin.
Þurrgerið sem ég nota |
búið að hræra þurrgerið, vatnið, olíuna og 3 dl af hveiti |
Buið að hræra 3 dl af hveitinu við |
![]() |
Litla snúllan mín sem hjálpaði mér ;* |
Læt það bíða í sc. klst í skálinu, með lokið á, lofttæmt |
Stráið hveiti á borið |
Svona lítur þetta út í skálinni, eftir fyrstu gerjun. |
Hnoðar það örlítið með hveiti ef það er enþá blautt |
Rakt viskustykki yfir, í lokinn var þetta 2x stærra. |
Sósan komin á pissuna og undirbúningur hafinn |
Pizzan heit úr ofninum, gómsæt og girnileg. |
Njótið vel elskurnar.
Eigið góða helgi :*xoxo
íriserna
Engin ummæli:
Skrifa ummæli