fimmtudagur, 30. janúar 2014

DIY :: Valentines Day Gifts

Valenínusar dagurinn er rétt að koma og vil í tilefni þess að sýna ykkur flottar og skemmtilegar hugmyndir á gjöfum sem þið getið gert sjálf handa ykkar elskulega maka.

Ekki leiðinlegt að kaupa tvær könnur og ceramik túss og skreyta þær fallega.
Einfalt, persónulegt og ódýrt
Áttu krítamálingu ?
Ef svo, þá gætiru búið til allskyns fallegar könnur og skilið eftir falleg skilaboð
arðu út í búð, keyptu uppáhald gler bjórinn eða gos makans.
Getur tekið svona glesflöskukassa og skreytt hann eða búið til þinn eigin.
Makinn mun elska það !
Rauðar vöfflur með hjartalaga rjóma á.
bætir smá súkkulaði og sírop með,mjólkurglas og kannski ein rauð rós.
Volla flottur morgunmatur í rúmið
Einfalt og mjög persónulegt.
Hver myndi ekki elska að fá svona frá makanum sínum.
Gjafakarfa.
Karfa, ostar, kex, sulta, vín og smá fallegt bréf.
Gæti ekki verið einfaldara.
Findu næsta spilastokk, penna, pappír, lím, gatara og band.
Límir á hvert spil pappírsbút, skrifar einhvað fallegt til makans, gatar öll spilin og bindir þau saman.
Einnig geturu gert stafróið.
Eitt blað fyrir hvern staf og skrifa afhverju þu elskar makan.
En setningin verður að byrja á þeim staf sem er á blaðinu.
Hérna er hægt að kaupa annahvort dökkan pappír eða prenta tökkalitin á blaðið.
En það sem þarf er rammi, pappír, tölva með t.d. word í og prentari.
Afar einfalt og rosalega fallegt.
Þinn maki mikið fyrir Te ?
Búðu þá til þína eigin tepoka með uppáhalds te makans.
Get varla lýst því hvað þetta er sniðugt.
Blað, vaxlitur og máling.
Skafkort komið fyrir makan.

Ég klárlega mun nota einhvað af þessu fyrir minn mann.
Elska svona daga, sérstaklega þegar maður er með börn, þá leyfir maður sér ekki alltaf að nota dagana fyrir sig og makan. Þess vegna eru þessi dagar svo yndilegir.

Love á ykkur fólk, og njótið dagsins í sannri ást !
xoxo

íriserna

Engin ummæli:

Skrifa ummæli